Spilatorg.is opnar

Sent fyrir löngu síðan af iceflass

Komið sæl og hjartanlega velkomin á Spilatorg.

Þú hefur fundið Spilatorg.is.  Nú væri góð hugmynd að bókmerkja síðuna eða leggja nafnið á minnið:)  Hér getur þú spilað netleiki, bæði ein- og fjölspilunarleiki og spjallað á spjallborði eða í rauntímaspjalli.  Þú getur einnig gefið leikjum einkunn, sett þá í uppáhald, sent þá á vini, eignast vini á meðal notanda, borið stig þín saman við stig annarra og svo rúsínan í pylsuendan: Þú getur unnið þér inn Afrek!

Þú getur skoðað öll þau afrek sem í boði eru með því að smella hér.

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt spjalla um leiki, eða bara hvað sem er þá skaltu endilega kíkja á spjallborðið.

Þú getur spilað alla leikina án þess að búa til notandareikning, en ef þú vilt vinna þér inn afrek, gefa leikjum einkunn, spjalla á spjallborði o.fl. þá þarftu að skrá þig sem notanda. Það er algjörlega ókeypis og tekur enga stund:)

Það er okkar von að Spilatorg muni reynast þér vel og hér getir þú fundið þér eitthvað til skemmtunar á hverjum degi.

Kær kveðja
Starfsfólk Spilatorg.is 



Senda athugasemd

Vissirðu?

Spilatorg er besti staðurinn fyrir flash leiki á vefnum!
Við elskum flash leiki svo mikið að við hugsum stöðugt um þá.

Spilatorg

Velkomin(n) á spilatorg.is. Spilatorg er sjálfstæð leikjasíða þar sem þú getur spilað bæði einstaklings- og fjölspilunarleiki frítt.

Tól hönnuða

Ef þú ert flash leikja hönnuður, þá erum við með nokkur frábær tól til að hjálpa þér að búa til jafnvel enn betri leiki.

Frábærir leikir

Af hverju prófarðu ekki nokkra af bestu flash netleikjunum sem við erum með, algjörlega frítt?

Copyright ©2007-2010 Spilatorg™ - All rights reserved.15,6001ms on NONOBA-WEB2