Upplýsingar
Algengar Spurningar
Samfélag
- Ég er með frábæra hugmynd fyrir þessa vefsíðu!
- Ég fann villu!
- Ég sá vafasamt efni á síðunni, hvað geri ég?
- Ég sá spam í spjallborðunum eða athugasemdum, hvað á ég að gera?
- Hvað er ásættanleg hegðun á þessari síðu?
- Hver er tilgangurinn með því að gefa athugasemdum einkunn?
- Hver er tilgangurinn með að gefa leikjum einkunn?
- Get ég breytt sniðinu á skilaboðunum sem ég skrifa á spjallborðunum og í athugasemdum?
Vinir og uppáhald
- Hvað eru vinir?
- Hvernig verð ég vinur einhvers?
- Hvernig samþykki ég vinabeiðni?
- Hvernig set ég leik í uppáhald?
- Hvað gerist þegar ég set leik í uppáhald?
- Hvernig set ég leiki í LeikjaStikuna mína?
Reynsla og stig
Innsendir leikir
- Hvernig sendi ég inn leik?
- Hvaða slóð fær leikurinn minn?
- Hvernig breyti ég leik sem ég hef sent?
- Hvernig virka leikja útgáfurnar?
- Hvað með leyfið á leiknum sem ég sendi?
- Hvernig set ég topplista í leikinn minn?
- Hvernig set ég afrek í leikinn minn?
- Hvenær verða afrek leiks míns samþykkt?
- Hver er munurinn á "Sent af" og "Hannað af"?
- Hvað ætti ég að gera ef ég sé leik sem hefur verið sendur inn án leyfis.
- Hvað get ég gert ef ég sé leik sem ég á, en einhver annar hefur sent inn?
Samfélag
Ég er með frábæra hugmynd fyrir þessa vefsíðu!
Flott! Smelltu bara á Viðbragða hlekkinn á toppinum, eða smelltu hér til að senda þína uppástungu. Ef öðrum notendum líkar uppástungan þín, færðu XP fyrir hana. Mundu að skoða uppástungur sem aðrir hafa sent og gefðu þeim einkunn sem þér finnst að við ættum að nota.
Ég fann villu!
Úff, það er slæmt! En smelltu á viðbragðaflipann í spjallhlutanum, eða smelltu hér til að senda villutilkynningu. Mundu að skoða villutilkynningar sem aðrir notendur hafa sent, og greiddu þeim atkvæði sem þér finnst að við ættum að laga fyrst.
Ég sá vafasamt efni á síðunni, hvað geri ég?
Ef þú finnur leik sem þú heldur að brjóti gegn notendaskilmálunum, geturðu smellt á "Tilkynna sem óviðeigandi" hlekkinn, og við munum skoða leikinn og fjarlægja ef þörf krefur.
Ég sá spam í spjallborðunum eða athugasemdum, hvað á ég að gera?
Við hliðina á öllum athugasemdum og spjallfærslum er "spam" hlekkur. Smelltu á hann til að tilkynna hlutinn sem spam. Við munum athuga málið og fjarlægja notandann ef nauðsyn krefur.
Hvað er ásættanleg hegðun á þessari síðu?
Við ætlumst til þess að notendur okkar hagi sér vel. Við erum hér öll til að spila leiki og hafa gaman. Fylgdu almennri skynsemi. Ekki vera leiðinleg(ur), ekki áreita aðra notendur, ekki vera móðgandi og ekki auglýsa ólöglegt athæfi. Notendur sem brjóta þessar viðmiðunarreglur verða fjarlægðir. Þú getur líka lesið alla Notkunarskilmálana.
Hver er tilgangurinn með því að gefa athugasemdum einkunn?
Ef þú lest athugasemd einhvers staðar sem þér finnst vera mjög góð og hjálpsöm, fræðandi eða fyndin, þá getur þú kosið hana upp. Ef athugasemd fær nógu mörg atkvæði mun það verða meira áberandi, og höfundurinn fær XP fyrir hana. Ef athugasemd fær mörg neikvæð atkvæði mun hún verða falin. Þetta einfalda fyrirkomulag tryggir það að þú munt að mestu aðeins sjá góðar athugasemdir þegar þú lest um leik eða á spjallþráðum.
Hver er tilgangurinn með að gefa leikjum einkunn?
Þegar þú hefur prófað leik geturðu gefið honum einkunn á skalanum 0 til 5 stjörnur. Með því að gera það, hjálpar þú öðrum notendum að finna góða leiki og forðast þá slæmu. Þú færð XP fyrir að gefa leikjum einkunn og hönnuður leiksins fær fullt af XP ef mörgum notendum líkar við leikinn. Þú færð líka meira XP fyrir að gefa nýjum leikjum einkunn, þannig að þú skalt endilega prófa nýja leiki og gefa þeim einkunn.
Get ég breytt sniðinu á skilaboðunum sem ég skrifa á spjallborðunum og í athugasemdum?
Já! Við erum með góðar leiðbeiningar um það hér: Leiðbeiningar um snið
Vinir og uppáhald
Hvað eru vinir?
Ef þú verður vinur annara notenda, geturðu séð þegar þeir eru tengdir, þú getur borið saman stigin ykkar í leikjum og þú getur séð hvaða leiki vinur þinn er með í uppáhaldi. Vinir eru líka aðgreindir frá hinum notendunum í spjallinu ef þeir eru á sömu spjallrás og þú.
Hvernig verð ég vinur einhvers?
Þegar þú skoðar prófíl hjá öðrum notanda sem þér líkar vel við, geturðu smellt á "Senda vinabeiðni" til að senda þeim notanda beiðni um að verða vinur þinn. Þá þarftu aðeins að bíða eftir því að hinn notandinn samþykki beiðni þína.
Hvernig samþykki ég vinabeiðni?
Þegar þú skoðar vinasíðuna þína, sérðu lista af beiðnum hægra megin, og þú getur valið annaðhvort að samþykkja eða hafna hverri beiðni.
Hvernig set ég leik í uppáhald?
Þegar þú ert að spila leikinn, smelltu þá á takkan sem á stendur "Setja í uppáhald".
Hvað gerist þegar ég set leik í uppáhald?
Þú getur skrifað stutta lýsingu á því hvers vegna þú setur leikinn í uppáhald, sem aðrir geta séð. Mælt er með leiknum við vini þína, og þú færð einnig möguleika á því að setja hlekk á leikinn í LeikjaStikuna þína, þannig að þú getir fundið hann auðveldlega hvenær sem er.
Hvernig set ég leiki í LeikjaStikuna mína?
Ef þú ferð á "uppáhalds leikir" síðuna þína, er takki undir hverjum leik sem á stendur "Setja í stikuna". Ef þú smellir á það kemur upp gluggi sem leyfir þér að velja staðsetningu í LeikjaStikunni fyrir leikinn. Svona getur þú haft auðveldan aðgang að fjórum uppáhalds leikjunum þínum, hvenær sem er.
Reynsla og stig
Hvernir virkar XP kerfið?
Við höfum tvær tegundir af XP fyrir hvern notenda. Spilara XP og Hönnuða XP. Þú færð Spilara XP fyrir að spila leiki og leggja þitt af mörkum til samfélagsins, og þú færð Hönnuða XP fyrir að setja inn leiki sem þú býrð til og ef þú vísar nýjum notendum á síðuna.
Fyrir hvað fæ ég Spilara XP?
- 25 xp fyrir að fylla út prófílupplýsingarnar þínar
- 25 xp fyrir að skrifa prófíl texta
- 25 xp fyrir að velja eða setja inn Avatar
- 25 xp fyrir að senda inn prófíl mynd
- 1 xp hvert skipti sem þú gefur leik einkunn
- 5 xp hvert skipti sem þú gefur leik, sem hefur verið settur inn síðustu viku, einkunn
- 5 xp hvert skipti sem ein af athugasemdunum þínum fær einkunn fyrir ofan 10
- 10 xp í hvert skipti sem eitt af viðbrögðum þínum fær einkunn yfir 10
- 10 xp þegar leikjatáknmynd sem þú gafst er samþykkt
- 10 xp þegar leikjabakgrunnur sem þú gafst er samþykktur
- 25 xp þegar leikjaborði sem þú gafst er samþykktur
Fyrir hvað fæ ég Hönnuða XP?
- 25 xp fyrir hvern leik sem þú sendir inn
- 25 xp fyrir þá leiki þína sem fá sæmilega einkunn, sem þýðir a.m.k. 30 atkvæði og hærri einkunn en 2.5 stjörnur.
- 100 xp fyrir þá leiki þína sem fá góða einkunn, sem þýðir a.m.k. 100 atkvæði og hærri einkunn en 3.5 stjörnur.
- 200 xp fyrir þá leiki þína sem fá frábæra einkunn, sem þýðir a.m.k. 200 atkvæði og hærri einkunn en 4.5 stjörnur.
- 50 xp fyrir hvern leik þinn sem er spilaður oftar en 10000 sinnum
- 75 xp fyrir hvern leik þinn sem er spilaður oftar en 50000 sinnum
- 150 xp fyrir hvern leik þinn sem er spilaður oftar en 100000 sinnum
- 1 xp fyrir hvern notanda sem finnur þessa síðu í gegnum einhvern af leikjunum þínum og skráir sig svo
Innsendir leikir
Hvernig sendi ég inn leik?
Farðu á heimasíðuna þína og smelltu á senda hlekkinn undir "Þínir Leikir", eða smelltu hér.
Fyrir utan sjálfa flash skrána, þarftu líka að skrifa titil eða nafn leiksins, lýsingu á honum, einhverjar upplýsingar um hvernig hann spilast og táknmynd fyrir leikinn. Táknmyndin virkar alveg eins og avatar virkar fyrir notendur og verður birt í leikjalistanum. Að auki geturðu sett inn bakgrunnsmynd sem verður birt fyrir aftan leikinn þinn þegar hann er spilaður, og skjáskot sem sýnir spilun leiksins.
Fyrir utan sjálfa flash skrána, þarftu líka að skrifa titil eða nafn leiksins, lýsingu á honum, einhverjar upplýsingar um hvernig hann spilast og táknmynd fyrir leikinn. Táknmyndin virkar alveg eins og avatar virkar fyrir notendur og verður birt í leikjalistanum. Að auki geturðu sett inn bakgrunnsmynd sem verður birt fyrir aftan leikinn þinn þegar hann er spilaður, og skjáskot sem sýnir spilun leiksins.
Hvaða slóð fær leikurinn minn?
Titill leiksins verður notaður í slóð leiksins. Full slóð til hvers leiks lítur alltaf svona út: http://spilatorg.is/<notandanafn þitt>/<titill leiksins>
Ef þér líkar ekki við slóðina sem var búin til fyrir þig, getur þú breytt henni í "breyta leik" síðunni.
Ef þér líkar ekki við slóðina sem var búin til fyrir þig, getur þú breytt henni í "breyta leik" síðunni.
Hvernig breyti ég leik sem ég hef sent?
Á heimasíðu þinni er listi með leikjunum þínum. Ef þú smellir á breyta hlekkinn, ferðu á síðu þar sem þú getur breytt öllum upplýsingunum um leikinn.
Hvernig virka leikja útgáfurnar?
Ef þú hefur sent inn leik og breytir honum síðar eða lagar villur, eða lagar hann á einhvern hátt, getur þú sent nýja útgáfu af leiknum í gegnum "breyta leik" síðuna. Þannig heldurðu öllum athugasemdunum og einkunnum sem leikurinn hefur safnað, en býður samt upp á uppfærða útgáfu fyrir fólk til að spila og njóta.
Athugaðu þó að aðeins ein útgáfa getur verið virk í einu. Ef þú skiptir um skoðun um einhverjar breytingar sem þú sendir, getur þú alltaf virkjað gamla útgáfu af leiknum sem verður þá sú útgáfa sem notendurnir spila.
Ef þú gerir miklar breytingar á leiknum, þar sem sumir notendur gætu frekar viljað gömlu útgáfuna en þá nýju, mælum við með því að þú sendir nýju útgáfuna sem nýjann leik.
Athugaðu þó að aðeins ein útgáfa getur verið virk í einu. Ef þú skiptir um skoðun um einhverjar breytingar sem þú sendir, getur þú alltaf virkjað gamla útgáfu af leiknum sem verður þá sú útgáfa sem notendurnir spila.
Ef þú gerir miklar breytingar á leiknum, þar sem sumir notendur gætu frekar viljað gömlu útgáfuna en þá nýju, mælum við með því að þú sendir nýju útgáfuna sem nýjann leik.
Hvað með leyfið á leiknum sem ég sendi?
Þú þarft annaðhvort að vera hönnuður leiksins, eða hafa leyfi til að senda leikinn á síðuna.
Hvernig set ég topplista í leikinn minn?
Þú verður fyrst að samþætta Nonoba API inn í leikinn þinn og nota það til að senda stig notenda. Til að búa til stigalista, ferðu í breytingasíðuna fyrir leikinn þinn og smellir á Topplisti til að fá frekari upplýsingar.
Hvernig set ég afrek í leikinn minn?
Þú verður fyrst að samþætta Nonoba API inn í leikinn þinn og nota það til að verðlauna notendurnar með afrekum. Til að búa til afrek, ferðu í breytingasíðuna fyrir leikinn þinn og smellir á Afrek til að fá frekari upplýsingar.
Hvenær verða afrek leiks míns samþykkt?
Áður en afrek leiksins þíns verða sjáanleg og í boði fyrir spilara, verðum við að samþykkja þau. Leikurinn þinn þarf að uppfylla þessi skilyrði:
- Leikurinn þinn þarf í raun að vera spilanlegur leikur.
- Reynslustig (XP) sem eru í boði fyrir afrekin þurfa að vera í samræmi við fyrirhöfnina sem þörf er á við að ná því.
- Afrek eiga aðeins að vera verðlaunuð eftir að spilarin hefur reynt aðeins á sig, ekki af handahófi eða með því að láta leikinn líða án þess að nokkuð sé gert.
- Það verður að vera hægt að ná afrekinu miðað við uppgefnar upplýsingar/ráð.
Hver er munurinn á "Sent af" og "Hannað af"?
Þegar þú sendir inn leik sem þú hefur hannað sjálf(ur), ættir þú að haka í reitinn á innsendingarsíðunni sem segir að þú hafir hannað eða komið að hönnun leiksins. Ef þú gerir þetta, birtist leikurinn sem hannaður af þér, en ekki bara sendur af þér
Ef þú sendir leik á síðuna sem einhver annar hefur hannað, mátt þú ekki haka í reitinn. Ef þú gerir það viljandi, missir þú öll Hönnuða XP sem þú átt og gætir verið bannaður/bönnuð af síðunni.
Ef þú sendir leik á síðuna sem einhver annar hefur hannað, mátt þú ekki haka í reitinn. Ef þú gerir það viljandi, missir þú öll Hönnuða XP sem þú átt og gætir verið bannaður/bönnuð af síðunni.
Hvað ætti ég að gera ef ég sé leik sem hefur verið sendur inn án leyfis.
Farðu þá á síðu leikjaeigandans, smelltu á "Tilkynna sem óviðeigandi" hlekkinn, og skrifaðu ástæðuna.
Hvað get ég gert ef ég sé leik sem ég á, en einhver annar hefur sent inn?
Hafðu samband við okkur og við sjáum til þess að þú verðir skráður höfundur leiksins. Smelltu hér fyrir upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við okkur.